Við fjölgum Adobe áskriftum fyrir einstaklinga

10. maí, 2022
Banner einstaklings leyfi blog HS

Adobe er með sérstakar vefverslanir í öllum löndum all í kring um Ísland, á viðkomandi tungumáli, verðum í viðkomnadi gjaldmiðli og þeim sköttum sem eru lögbundnir í viðkomandi landi. Adobe telur sig ekki get rekið slíka vefverslun á Íslandi, þar sem markaðurinn er það lítill.

Adobe endursöluaðilar fá ekki að selja áskriftir til einyrkja eða t.d. sérstaka nemenda og kennara áskriftir fyrir þá sem þurfa aðganga að sínu eigin Adobe leyfi í tengslum við vinnu eða nám hjá viðurkenndri menntastofnun.  Verksvið Adobe endursöluaðilarer að sinna sölu á Adobe hugbúnaði til fyrirtækja, stofnana og til menntastofnana.

Við höfum ekki sætt okkur við þessa stöðu. Það tók okkur stífa baráttu í rúm 2 ár, að fá að selja 1-árs áskriftir persónulegar áskriftir að vinsælustu Adobe hugbúnaðinum. Í vetur fengum við Adobe til að skrifa svo frá grunni nýtt framtíðar viðmót fyrir okkur til að geta afgreitt kóða fyrir fleiri Adobe einstaklings áskriftir.

Með þessu nýja viðmóti verður auðveldara fyrir Adobe og okkur að bæta við fleiri einstaklings áskriftum fyrir Íslendinga. Við höfum litið á þetta sem „prinsip“ mál, en ekki út frá viðskiptalegu sjónarmiði. Á sama hátt höfum við hingað til ekki tekið greiðslu fyrir tæknilega aðstoð.

ATHUGIÐ: Ekki er mælt með því að blanda saman einstaklings áskriftum og Adobe CC eða Adobe DC VIP leyfum fyrir fyrirtæki, stofnanir eða skóla.

Hér eru þær einstaklings 1 árs áskriftir sem við getum boðið í dag:

Við teljum mjög mikilvægt að við getum verið til staðar fyrir alla Adobe notendur á Íslandi. Fyrirtæki, stofnanir, skóla á öllum stigum, lítil fyrirtæki og einstaklinga. Við lítum björtum augum til þess að geta bætt við fleiri Adobe einstaklings áskriftum við vöru úrval okkar til að mæta Adobe þörfum íslensks markaðar betur.

Ekki hika við að hafa samband við okkur, ef við getum aðstoðað eitthvað varðandi Adobe hugbúnað.
Við sendum upplýsingar um nýjungar og fræðslutengda atburði til þeirra sem eru skráðir á póstlista okkar. Skrá sig á póstlista.
Hafa samband – info@hugbunadarsetrid.is – s: 415-6444
Shopping Cart
Scroll to Top