Adobe Premiere Elements 2027
Auðvelt fyrir byrjendur og með flóknari ferla sem notandinn getur nýtt sér stig af stigi, samfara því að þekkingin eykst.
Premiere Elements 2027 er myndvinnsluforrit sem gerir þér kleift að finna og klippa fljótt út það besta úr myndefninu þínu – engrar fyrri reynslu er þörf. Hvort sem þú vilt breyta stærð myndbands fyrir samfélagsmiðla eða nota lita-verkfæri og tæknibrellur til að gera frásögnina áhrifameiri, þá býður forritið upp á allt sem þú þarft:
Áreynslulaus myndvinnsla með aðstoð gervigreindar og sjálfvirkni
Leiðbeiningar skref fyrir skref sem hjálpa þér að þróa færni þína á þínum eigin hraða
Einstakar tæknibrellur, umskipti og aðrir skapandi valkostir sem lyfta myndefninu á hærra plan
Skipulag-sverkfæri (Organizer) til að flytja inn, merkja og finna myndböndin þín á fljótlegan hátt
Komdu beint að kjarnanum með Premiere Elements. Verkfæri sem nýta gervigreind og sjálfvirkni auðvelda myndbanda klippingu, svo þú getir klippt til, breytt stærð, lagað hljóð og stillt liti og lýsingu á augabragði. Þróaðu færni þína á þínum eigin hraða með mismunandi klippi stillingum: einfaldri (Quick), leiðsögn (Guided) og ítarlegri (Advanced). Búðu til myndir og skapandi titla, notaðu tæknibrellur og umskipti, láttu titla hreyfast og bættu við fullkomnu hljóðspori til að móta söguna þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana. Deildu síðan afrakstrinum á YouTube, Vimeo og fleiri vettvanga.



