Adobe Studio

Gervigreind sem skilur skjölin þín

Adobe Express er hönnunarforrit þar sem þú velur sniðmát, bætir við myndum og texta, klárar verkefnið á stuttum tíma. Þú finnur sniðmát fyrir samfélagsmiðla, kynningar, veggspjöld og myndbönd. Gervigreindin leggur til útlit sem passar saman svo þú þurfir ekki að huga að öllu sjálfur.

Hvað gerir gervigreindin í Acrobat Studio?

Gervigreindin les skjölin þín og skilur innihaldið. Þú getur spurt hana spurninga um efnið, fengið samantekt á löngum skjölum eða fundið ákveðnar upplýsingar án þess að fletta sjálfur. Hún aðstoðar við breytingar, umbreytingar og flýtir fyrir öllu sem tengist PDF vinnslu. Þannig sparar þú tíma og einbeitir þér að ákvörðunum í stað lestrar.

Spjallaðu við skjölin þín

Fáðu samantektir og lykilatriði með nákvæmum tilvísunum í einum smelli. Spurðu gervigreindaraðstoðina um hvað sem er í skjalinu og fáðu svör sem þú getur nýtt strax. Hún bendir á rétta síðu og kafla svo þú þurfir ekki að leita sjálfur. Frá spurningu til aðgerða á sekúndum.

Deildu og safnaðu athugasemdum

Sendu PDF skjöl með einum smelli og leyfðu öðrum að skoða eða skrifa athugasemdir án þess að skrá sig inn eða hlaða niður forriti. Allir sjá sömu útgáfuna, athugasemdir safnast á einn stað og þú heldur utan um allt frá upphafi til enda. Ekkert flókið, engir tæknilegar hindranir. Bara einföld samvinna.

Verndaðu PDF skjölin þín

Komdu í veg fyrir að aðrir afriti, breyti eða prenti skjölin þín. Með öryggisverkfærum Acrobat getur þú læst skjöl með lykilorði, takmarkað aðgerðir og tryggt að viðkvæmt efni fari ekki á villigötur. Þú ræður hver má gera hvað.




Acrobat fyrir lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og skóla

Fyrirtæki, stór eða lítil, stofanir og menntastofnanir, panta aðgang að Adobe Admin Console. í geng um Adobe Admin Console stjórna þau hvað Adobe hugbúnað þau þurfa og skrá svo viðkomandi leyfi á endanotend. Adobe Admin Console einfaldar all umsýslu með Adobe leyfi, getur fært þau á mili notenda eða bætt tímabundið við leyfum til lok áskriftartímabils.

Acrobat Standard

Helstu PDF verkfærin sem flestir þurfa daglega. Búðu til, breyttu, undirritaðu og deildu skjölum á öruggan hátt. Hentar einstaklingum og minni vinnuhópum sem vilja áreiðanlega grunnlausn.

Verð: 32.261 kr. með VSK

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Acrobat Pro

Allir eiginleikar Acrobat fyrir fulla skjalastjórnun. Búðu til, breyttu, verndaðu og undirritaðu skjöl með öflugum verkfærum. Hentar fagfólki og fyrirtækjum sem vinna mikið með skjöl.

Verð: 62.716 kr. með VSK

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Acrobat Studio

Allt sem Pro býður upp á, ásamt gervigreindaraðstoð. Dragðu saman skjöl, finndu upplýsingar á sekúndum og kláraðu verkefni hraðar. Hentar þeim sem vilja vinna snjallari með skjöl.

Verð: 79.288 kr. með VSK

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Algengar spurningar og svör

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Adobe hugbúnað, áskriftir, leyfi og þjónustu. Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu geturðu haft samband við okkur. Við aðstoðum þig með ánægju.

Shopping Cart
Scroll to Top