Menntastofnanir

Lausnir fyrir menntastofnanir

Sveigjanlegar lausnir sem henta menntastofnunum, stórum sem smáum. Haltu utan um notendur, stýrðu aðgangi og tryggðu samræmi í hönnun og kennsluefni. Gervigreindareiginleikar hjálpa kennurum og nemendum að vinna hraðar frá hugmynd að fullunnu verkefni.

Lausnir sem menntastofnanir treysta á

Skólar og háskólar þurfa á áreiðanlegum verkfærum að halda til að hanna kennsluefni, miðla þekkingu og vinna hraðar. Hér finnur þú vinsælustu lausnirnar sem henta menntastofnunum af öllum stærðum. Með einfaldri leyfisstýringu, samnýtingu efnis og aðgangi að öflugum forritum fá nemendur og kennarar það sem þarf til að vinna skipulega og þróa verkefni áfram. Við veitum ráðgjöf og þjónustu sem styður þig í hverju skrefi.

Einföld leyfisstýring á einum stað

Yfirsýn yfir alla notendur á einum stað. Úthlutaðu forritum, stýrðu aðgangi og bættu við eða fjarlægðu notendur eftir þörfum án fyrirhafnar. Stjórnendur sjá í einu vetfangi hverjir eru með aðgang og geta breytt stillingum hvenær sem er.

Sömu forrit og skapandi fagfólk notar

Nemendur og kennarar fá aðgang að sömu forritum og skapandi fagfólk notar um allan heim. Photoshop, Illustrator, Premiere Pro og fleira, bæði í skólanum og heima. Forritin vinna saman þannig að auðvelt er að færa verkefni á milli og vinna í þeim hvar sem hentar.

Persónuleg þjónusta og ráðgjöf á íslensku

Persónuleg ráðgjöf, aðstoð við uppsetningu og stuðningur við innleiðingu svo allt gangi snurðulaust frá fyrsta degi. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda og hjálpum þér að finna bestu lausnina fyrir þína stofnun.

Þarftu aðgang að einu forriti eða öllu forritasafninu?

Menntastofnanir geta valið um aðgang að einu sérhæfðu forriti eða Creative Cloud áskrift sem veitir aðgang að öllum helstu verkfærum Adobe. Ef kennslan snýst eingöngu um hönnun, myndvinnslu eða umbrot getur stakt leyfi verið hagkvæm lausn. Ef stofnunin þarf breiðari getu, samvinnuverkfæri og sveigjanleika milli námsgreina, er heildarpakkinn skynsamlegt val. Við hjálpum þér að finna leið sem hentar kennslustarfinu og fjárhag stofnunarinnar.

Creative Cloud – Stakur hugbúnaður

Creative Cloud fyrir teymi veitir aðgang að t.d. Photoshop, Illustrator, InDesign, Premier Pro ásamt öflugum samvinnuverkfærum og sveigjanlegri leyfisstýringu fyrir vinnustaði, teymi og stofnanir. Þessi áskrift einfaldar samvinnu, deilingu efnis og stjórn á notkun, hvort sem þú ert með tvo notendur eða tuttugu.

Verð: Invalid product.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Creative Cloud – Allur pakkinn

Creative Cloud All Apps veitir aðgang að öllum helstu Adobe forritum fyrir hönnun, myndvinnslu, myndbandsgerð, útgáfu og Acrobat Pro. Áskriftin hentar teymum og fyrirtækjum sem vilja öflugt skapandi umhverfi með skýrri leyfisstýringu og samstarfstólum sem spara tíma.

Verð: 215.326 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Acrobat

Acrobat fyrir fyrirtæki veitir aðgang að öflugum PDF-tólum. Hægt er að vinna skjöl, fá undirskriftir og vinna saman á skilvirkan hátt. Hentar vel þar sem þörf er á faglegri skjalastýringu, öruggum aðgangi og skýrri leyfisstjórnun.

Verð: Invalid product.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Algengar spurningar og svör

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Adobe hugbúnað, áskriftir, leyfi og þjónustu. Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu geturðu haft samband við okkur. Við aðstoðum þig með ánægju.

Shopping Cart
Scroll to Top