Lightroom

Snjallari myndvinnsla með nýjum verkfærum

Lightroom þekkir sjálft andlit, himinn og bakgrunn á myndinni. Þú þarft ekki að merkja eða afmarka svæði handvirkt. Einbeittu þér að litunum, birtunni og tónunum. Restin gengur hraðar en áður.

Lightroom er miðstöð ljósmyndavinnslunnar

Lightroom er verkfærið sem ljósmyndarar treysta á til að skipuleggja, vinna og deila myndum sínum. Hentar jafnt vel fyrir portrett, landslag, vörumyndir og allt þar á milli. Með fullri stýringu á litum, skerpum og tónum færðu nákvæmlega þá útkomu sem þú sækist eftir. Með skýjageymslu Adobe og samþættingu við önnur forrit hefur þú aðgang að myndasafninu hvar sem þú ert, hvort sem þú vinnur í tölvu, spjaldtölvu eða síma.

Hreinsað á augabragði

Með nýjum Generative Remove eiginleika í Lightroom geturðu fjarlægt truflandi hluti úr myndum án þess að skilja eftir ummerki. Snúrur, fólk í bakgrunni eða aðrir óþarfa hlutir hverfa á náttúrulegan hátt og myndin heldur heildarútliti sínu. Þetta sparar tíma í eftirvinnslu og gerir myndvinnslu bæði hraðari og snyrtilegri.

Fínstilltu hvert smáatriði

Stilltu birtu, liti, notaðu áhrif og forsnið og lagfærðu myndir með nákvæmni. Þú getur unnið með myndina í heild eða valið afmörkuð svæði til að ná fram réttu stemningu. Hvort sem þú vinnur í tölvu, síma eða í vafra heldur Lightroom flæðinu einföldu og faglegu.

Þarftu bara Illustrator eða viltu öll forrit Adobe

Þú getur byrjað með Illustrator eitt og sér, sem hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vinna með vektorgrafík, lógó, teikningar og útlitshönnun. Þetta er hagkvæmur kostur fyrir hönnuði sem þurfa öflugt og nákvæmt hönnunarverkfæri án þess að fjárfesta í heildarpakkanum. Ef þörfin breikkar er auðvelt að bæta við fleiri forritum síðar.

Photoshop Lightroom

Hvort sem þú ert byrjandi eða atvinnumaður eða einhvers staðar þar á milli, þá inniheldur Adobe Photoshop Lightroom Classic öll nauðsynleg verkfæri til að vinna ljósmyndir á skjáborðinu. Með Lightroom Classic hefurðu aðgang að öflugum verkfærum með einum smelli og háþróaðri stýringu til að láta myndirnar þínar líta ótrúlega út. .

Verð: 25.606 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift

Photoshop Photography

Photoshop er öflugt myndvinnsluforrit fyrir tölvu og iPad, hentugt fyrir fagfólk og skapandi áhugamenn sem vilja fá nákvæma stjórn á myndvinnslu og hönnun; ef þú notar líka Lightroom mælum við með Adobe Photography áskriftinni þar sem hún inniheldur bæði Photoshop og Lightroom á hagkvæmara verði.

Verð: 48.360 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift

Creative Cloud Allur pakkinn

Full Adobe áskrift veitir þér aðgang að yfir tuttugu skapandi forritum fyrir myndvinnslu, grafíska hönnun, myndbandsgerð, hreyfigrafík, útgáfu, vefhönnun og fleira. Þetta er kjörin lausn fyrir einstaklinga sem vilja öflug og samhæfð verkfæri til að vinna að hugmyndum sínum frá upphafi til loka.

Verð: 150.772 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift

Creative Cloud fyrir nám og kennslu

Nemendur og kennarar fá aðgang að yfir 20 Adobe forritum fyrir hönnun, ljósmyndavinnslu, myndbandsgerð, útgáfu og fleira. Áskriftin hentar vel til notkunar í verkefnum, námskeiðum og kennslu, með öflugum verkfærum sem styðja skapandi vinnu í skólaumhverfi.

Verð: 46.279 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift

Photoshop stök forrit

Creative Cloud fyrir teymi veitir aðgang að Photoshop ásamt öflugum samvinnuverkfærum og sveigjanlegri leyfisstýringu fyrir vinnustaði, teymi og stofnanir. Þessi áskrift einfaldar samvinnu, deilingu efnis og stjórn á notkun, hvort sem þú ert með tvo notendur eða tuttugu.

Photoshop
Lightroom
Lightroom Classic
Firefly
Portfolio / Bridge
1 TB Skýjahýsing

Verð: 86.775 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Creative Cloud – Allur pakkinn

Creative Cloud All Apps veitir aðgang að öllum helstu Adobe forritum fyrir hönnun, myndvinnslu, myndbandsgerð, útgáfu og margt fleira. Áskriftin hentar teymum og fyrirtækjum sem vilja öflugt skapandi umhverfi með skýrri leyfisstýringu og samstarfstólum sem spara tíma.

Verð: 222.431 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Photoshop fyrir stofnanir

Creative Cloud fyrir teymi veitir aðgang að Photoshop ásamt öflugum samvinnuverkfærum og sveigjanlegri leyfisstýringu fyrir vinnustaði, teymi og stofnanir. Þessi áskrift einfaldar samvinnu, deilingu efnis og stjórn á notkun, hvort sem þú ert með tvo notendur eða tuttugu.

Verð: 86.775 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Creative Cloud – Allur pakkinn

Creative Cloud All Apps veitir aðgang að öllum helstu Adobe forritum fyrir hönnun, myndvinnslu, myndbandsgerð, útgáfu og margt fleira. Áskriftin hentar teymum og fyrirtækjum sem vilja öflugt skapandi umhverfi með skýrri leyfisstýringu og samstarfstólum sem spara tíma.

Verð: 222.431 kr.

Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift


Algengar spurningar og svör

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Adobe hugbúnað, áskriftir, leyfi og þjónustu. Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu geturðu haft samband við okkur. Við aðstoðum þig með ánægju.

Shopping Cart
Scroll to Top