Menntastofnanir
Lausnir fyrir menntastofnanir
Sveigjanlegar lausnir sem henta menntastofnunum, stórum sem smáum. Haltu utan um notendur, stýrðu aðgangi og tryggðu samræmi í hönnun og kennsluefni. Gervigreindareiginleikar hjálpa kennurum og nemendum að vinna hraðar frá hugmynd að fullunnu verkefni.
Lausnir sem menntastofnanir treysta á
Skólar og háskólar þurfa á áreiðanlegum verkfærum að halda til að hanna kennsluefni, miðla þekkingu og vinna hraðar. Hér finnur þú vinsælustu lausnirnar sem henta menntastofnunum af öllum stærðum. Með einfaldri leyfisstýringu, samnýtingu efnis og aðgangi að öflugum forritum fá nemendur og kennarar það sem þarf til að vinna skipulega og þróa verkefni áfram. Við veitum ráðgjöf og þjónustu sem styður þig í hverju skrefi.
Einföld leyfisstýring á einum stað
Yfirsýn yfir alla notendur á einum stað. Úthlutaðu forritum, stýrðu aðgangi og bættu við eða fjarlægðu notendur eftir þörfum án fyrirhafnar. Stjórnendur sjá í einu vetfangi hverjir eru með aðgang og geta breytt stillingum hvenær sem er.
Sömu forrit og skapandi fagfólk notar
Nemendur og kennarar fá aðgang að sömu forritum og skapandi fagfólk notar um allan heim. Photoshop, Illustrator, Premiere Pro og fleira, bæði í skólanum og heima. Forritin vinna saman þannig að auðvelt er að færa verkefni á milli og vinna í þeim hvar sem hentar.
Persónuleg þjónusta og ráðgjöf á íslensku
Persónuleg ráðgjöf, aðstoð við uppsetningu og stuðningur við innleiðingu svo allt gangi snurðulaust frá fyrsta degi. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda og hjálpum þér að finna bestu lausnina fyrir þína stofnun.
Þarftu aðgang að einu forriti eða öllu forritasafninu?
Menntastofnanir geta valið um aðgang að einu sérhæfðu forriti eða Creative Cloud áskrift sem veitir aðgang að öllum helstu verkfærum Adobe. Ef kennslan snýst eingöngu um hönnun, myndvinnslu eða umbrot getur stakt leyfi verið hagkvæm lausn. Ef stofnunin þarf breiðari getu, samvinnuverkfæri og sveigjanleika milli námsgreina, er heildarpakkinn skynsamlegt val. Við hjálpum þér að finna leið sem hentar kennslustarfinu og fjárhag stofnunarinnar.
Creative Cloud – Stakur hugbúnaður
Creative Cloud fyrir teymi veitir aðgang að t.d. Photoshop, Illustrator, InDesign, Premier Pro ásamt öflugum samvinnuverkfærum og sveigjanlegri leyfisstýringu fyrir vinnustaði, teymi og stofnanir. Þessi áskrift einfaldar samvinnu, deilingu efnis og stjórn á notkun, hvort sem þú ert með tvo notendur eða tuttugu.
Verð: Invalid product.
Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift
Creative Cloud – Allur pakkinn
Creative Cloud All Apps veitir aðgang að öllum helstu Adobe forritum fyrir hönnun, myndvinnslu, myndbandsgerð, útgáfu og Acrobat Pro. Áskriftin hentar teymum og fyrirtækjum sem vilja öflugt skapandi umhverfi með skýrri leyfisstýringu og samstarfstólum sem spara tíma.
Verð: 215.326 kr.
Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift
Acrobat
Acrobat fyrir fyrirtæki veitir aðgang að öflugum PDF-tólum. Hægt er að vinna skjöl, fá undirskriftir og vinna saman á skilvirkan hátt. Hentar vel þar sem þörf er á faglegri skjalastýringu, öruggum aðgangi og skýrri leyfisstjórnun.
Verð: Invalid product.
Árleg greiðsla fyrir 12 mánaða áskrift
Algengar spurningar og svör
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Adobe hugbúnað, áskriftir, leyfi og þjónustu. Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu geturðu haft samband við okkur. Við aðstoðum þig með ánægju.
Hvaða Adobe lausnir eru í boði fyrir menntastofnanir?
Menntastofnanir geta valið um stök forrit eða Creative Cloud heildarpakka sem veitir aðgang að öllum helstu forritum Adobe. Einnig er hægt að bæta við Acrobat og Adobe Sign fyrir skjalastjórnun og rafrænar undirskriftir.
Hvernig er verðlagning fyrir menntastofnanir?
Adobe býður sérstakt námsverð sem er verulega lægra en venjulegt fyrirtækjaleyfi. Verð fer eftir fjölda notenda og hvaða forrit eða pakka stofnunin velur. Hafðu samband við okkur til að fá tilboð sem hentar þinni stofnun.
Hvernig er notendum stýrt?
Stjórnandi stofnunarinnar fær aðgang að sérstöku stjórnborði þar sem hægt er að úthluta forritum, bæta við eða fjarlægja notendur og stýra aðgangi. Allt á einum stað án flókinna ferla.
Geta nemendur notað forritin heima?
Já, nemendur og kennarar geta notað forritin bæði í skólanum og heima. Áskriftin fylgir notandanum, ekki tækinu, svo hægt er að vinna hvar sem hentar.
Hvaða forrit nota menntastofnanir mest?
Photoshop, Illustrator, InDesign og Premiere Pro eru vinsælustu forritin í menntastofnunum. Þau nýtast vel í hönnun, myndvinnslu, umbroti og myndbandsklippingu sem tengist fjölbreyttum námsgreinum.
Er hægt að byrja smátt og bæta við síðar?
Já, þú getur byrjað með aðgang að einu forriti eða fáum notendum og stækkað síðar eftir þörfum. Leyfiskerfið er sveigjanlegt og stofnunin getur breytt áskriftinni hvenær sem er.
Hvernig hjálpar gervigreindin í kennslunni?
Gervigreindareiginleikar í Adobe forritum flýta fyrir skapandi vinnu. Nemendur geta til dæmis fjarlægt bakgrunn úr myndum á sekúndum, búið til hönnun með aðstoð og einbeitt sér að skapandi ferlinu í stað tæknilegra smáatriða.
Er geymsla í skýinu innifalin?
Já, í áskriftinni fylgir geymsla í Adobe skýinu. Nemendur og kennarar geta vistað verkefni á öruggan hátt og nálgast þau hvar sem er. Einnig er auðvelt að deila efni á milli notenda innan stofnunarinnar.
Fáum við þjónustu á íslensku?
Já, við veitum persónulega þjónustu og ráðgjöf á íslensku. Við aðstoðum við uppsetningu, innleiðingu og daglegan stuðning svo allt gangi snurðulaust frá fyrsta degi.
Hvernig byrjum við?
Hafðu samband við okkur og við greinum þarfir stofnunarinnar saman. Við hjálpum þér að velja réttu lausnina, setja upp leyfiskerfið og koma öllu í gang. Einfalt og þægilegt.


