Acrobat Studio hjálpar þér að vinna með gervigreind, hvort sem þú ert á skrifstofunni, heima, í skólanum eða á ferðalagi.
Flestum okkar finnst sem að bæði lífs hraðinn og eigin væntingar aukist, hvort sem við erum í vinnunni, í skólanum, heima á ferðinni, þegar taka þarf mikilvægar ákvarðanir. Varðandi vinnu okkar eða heimil okkar. Við þurfum að safna upplýsingum, vinna úr þeim og taka saman réttu upplýsingarnar fyrir kynningu í vinnunni, skólaverkefni eða fjárhagsáætlanir. Smá aðstoð getur gagnast okkur öllum til að vinna slík verkefni betur og hraðar.
Þetta er hugmyndin að baki Acrobat Studio, nýju vinnusvæði, þar sem efni getur komið úr ýmsum áttum. Þar sameinast öflug PDF-tækni Adobe Acrobat, einföld efnis hönnun með Adobe Express og aðstoð háþróaðar gervigreindar Adobe.
Acrobat Studio er ekki bara hannað fyrir nútímann. Acrobat Studio er hannað fyrir þig núna og í framtíðinni. Við þurfum að vinna úr sífellt fleiri upplýsingum, sannreyna þær og skilja. Við höfum öll hag af því að bæta samskipti okkar, ekki síst sjónrænt. Við leitum öll að einföldum lausnum í daglegum áskorunum.
Þú getur tekið Acrobat Studio í notkun í dag. Hér er aðeins smá innsæi í það sem Acrobat Studio getur gert:
Acrobat Studio hjálpar þér að undirbúa fundi betur. Þú getur sett saman skýra kynningu, skoðað starfsemi hugsanlegs viðskiptavinar áður en þú semur tillögu, eða borið saman tugi tilboða á skömmum tíma. Stórt safn sniðmáta fylgir til að auðvelda þér að búa til smart efni.
Acrobat Studio sameinar öflugustu PDF tól iðnaðarins og snjalla gervigreind, sem tekur mið af efnisinnihaldi verkefnisins. Gervigreind, sem hjálpar þér að vinna hraðar, skila meiri áhrifum og ná betur markmiðum þínum.
Phil Pallen, vörumerkjaráðgjafi og fulltrúi Adobe, skrifaði nýlega bókina AI for Small Businesses.
„Acrobat Studio er ekki bara til að vinna með skjöl. Þetta er einfaldlega betri vinnumáti," segir Pallen. „Ég hef notað þetta til að skipuleggja efni fyrir viðskiptavin, setja saman leiðbeiningar fyrir ljósmyndun, bera saman kynningar og draga saman lykilatriði úr 30 blaðsíðna tillögum. Allt á einum stað."

PDF Spaces: Safnaðu saman öllu efni inn í eitt PDF Space. PDF-skjöl, Office 365-skjöl, vefslóðir og fleira inn í þitt eigið samtals rými fyrir verkefnið, þar sem þú getur spjallað við efnið, til að öðlast innsýn, búa til hugmyndir, staðfest svör með nákvæmum heimildum og bætt við athugasemdum. Ef þú þarft að endurskoða verkefnið? Þú getur heimsótt PDF Space hvenær sem er.

Viltu deila PDF Space þínu, ásamt sérsniðnu AI- verkfæri þínu, með samstarfsfólki í rauntíma, til að nýta þér aðstoð þeirra? Í PDF Spaces geturðu notað fyrirfram smíðað AI-verkfæri - einskonar greiningaraðila eða kennara, til að veita dýpri innsýn í verkefnið. Eða einfaldlega sérsniðið eigið AI verkfæri og stýrt svörum þess til að fá persónulegri niðurstöður. Deildu öllu PDF Space-inu, með sérsniðna AI verkfærinu, með samstarfsfólki og/eða viðskiptavinum, til að miðla þekkingu, en ekki bara skrám.

Búðu til efni sem sker sig úr með Adobe Express: Acrobat Studio veitir aðgang að heilu úrvali af Adobe Express Premium verkfærum og efni, þar á meðal faglega hönnuðum viðskiptasniðmátum sem gera þér kleift að búa til hágæða flugbæklinga, upplýsingamyndir, færslur á samfélagsmiðla og fleira á einfaldan hátt. Að auki geturðu fínpússað efnið enn frekar með einföldum verkfærum og sérsniðnum gervigreindarmyndum.
Acrobat Studio inniheldur einnig öll nauðsynleg PDF verkfæri úr Acrobat Premium sem gera þér kleift að breyta, búa til, rafrita, hylja viðkvæmar upplýsingar, bera saman og vernda PDF skjöl. Þú getur búið til samantektir og fengið innsýn hratt með AI Assistant, jafnvel fyrir skannanir og samninga. Contract AI einfaldar vinnu með flókna samninga. Og Intelligent citations gerir það auðvelt að staðfesta og treysta innsýn sem gervigreindin býr til.
Vinna snjallara í skóla og heima
Nemendur geta nú notað Acrobat Studio til að ná betri tökum á verkefnum með því að skipuleggja glósur og lesefni hratt og búið til námsefnis-yfirlit og spurninga-spjöld fyrir sig. Þeir geta notað Acrobat Studio til að hugsa upp efnistök fyrir ritgerðir, safna rannsóknarefni saman og staðfest heimildir. Og með Adobe Express er einfalt að bæta töflum og upplýsinga-myndum inn í kynningar og nota faglega hönnuð sniðmát til að lyfta skýrslum og feril-möppum upp á vandaðra plan.
Fyrir almenna notendur er Acrobat Studio til staðar fyrir stórar og smáar stundir lífsins. Skipulegðu stór verkefni eins og að kaupa og endurnýja húsnæði með því að safna saman og bera saman tilboð og fylgjast með samningsskilmálum í sérstöku Acrobat Studio rými, sem þú getur deilt með maka þínum. Til að skipuleggja fullkomna ferð geturðu safnað umsögnum, ráðleggingum, ferðaáætlunum og bæklingum og síðan búið til persónulegan ferðaráðgjafa með gervigreindinni. Og þú getur svo notað Adobe Express til að fanga og deila ævintýrunum á samfélagsmiðlum á skemmtilegan máta. Ef þú vilt styrkja ferilinn getur Acrobat Studio líka verið þitt rými, til að greina atvinnuauglýsingar, rannsaka hugsanlega vinnuveitendur, búa til æfingaspurningar fyrir atvinnuviðtöl og fínstilla ferilskrána til að hjálpa þér að landa draumastarfinu.



